Heiðarbóls Labrador
    <description>LABRADOR RETRIEVER</description>
    <language>is</language>
Skotvís grein
      <description>Skotvís hafði samband við mig 2020 um að skrifa grein í næsta blað Skotvís um veiðihunda.þar sem ég er eingöngu með reynslu af þjálfun og veiði með labrador retriever lá beinast við að skrifa um þá.hér er meðfylgjandi greinin sem birtist í Skotvísblaðinu.Skotvís grein</description>
Hvolparnir hennar Heiðarbóls Dimmu
      <description>Eins og fram hafði komið var framundan got hjá Heiðarbóls Dimmu og pabbinn Huntingmate Atlas.Dimma gaut í um kvöldið 9.janúar og nóttina á eftir 10 hvolpum, 5 tíkum, ein gul og fjórar svartar, 5 rökkum, tveir gulir og þrír svartir.Þeir dafna allir vel á þessu stigi og eru allir lofaðir eða verið að klára það mál.Hér má sjá nokkrar myndir</description>
Námskeið
      <description>Síðan við byrjuðum að rækta og fengum okkar fyrsta got 2017 hef ég fylgt eftir hvolpunum og ýmist verið með námskeið eða bara stutt fólk áfram.  Oftast hefur það verið bland.Við höfum einnig staðið að því að fá vini okkar Trond og Aase frá Noregi (nú búsett í Danmörku) í samvinnu við Hrafnsvíkur labrador hingað til lands að halda námskeið.Ég hef nú ákveðið að víkka þetta aðeins út fyrir minn hóp og prófa að halda námskeið sem er opið.Ég kalla það fyrir lengra komna, þá á ég við að þetta er ekki byrjenda hvolpanámskeið.  Þetta er næsta stig þar fyrir ofan og stiður við og hjálpar stjórnendum að ná vinnu með hundinn á næsta stig.Þeir sem vilja skrá sig vinsamlega sendið mér póst á facbook annað hvort í gengum Heiðarbóls síðuna eða mína persónulegu.  Eins er hægt að hringja í mig í síma 8255219.Svo er bara að sjá hvort maður þróar þetta áfram.</description>
Nýtt ár og áskoranir 2020
      <description>Nú þegar nýtt ár hefur gengið í garð er nóg að verkefnum framundan í hundamálumVið byrjuðum á því að fara á æfingar með félögum okkar bæði með Heiðarbóls hunda og aðrir. Mjög skemmtilegt að taka þátt í æfingum með öðrum þar sem það gefur kost á flóknari uppsetningum og aðstoð sem er mikilvæg, ásamt auðvitað félagsskap.  Einnig þjálfar það hundana í að bíða og vinna þegar aðrir bíða. Setti inn nokkrar myndir í albúmið.Mesta spennan er þó að bíða með Heiðarbóls Dimmu eftir að hún gjóti, við reiknum með goti um og í kringum næstu helgi eða um 12.janúar.Svona er hún í dag 5.janúar ansi stór orðin, glöð og orkumikil.</description>
Jólakveðja
      <description>Gleðileg jól og farsælt nýtt árKærar þakkir fyrir liðin ár kær kveðja,Heiðar og DagmarHeiðarbólsræktun</description>
Heiðarbóls Dimma á von á hvolpum 
      <description>OFLW-19 Heiðarbóls Dimma og BFLW-19 Huntingmate Atlas voru pöruð í nóvember s.l. og nú er ljóst að Dimma er hvolpafull.Von er á goti um miðjan janúar n.k.  .Báðir hundar eru búin að eiga gott sumar á veiðiprófum í sumar. eru með mikinn vinnuvilja og þægileg í þjálfun.  Í sumar tók Atlas þátt í 6 veiðiprófum 4 í BFL og 2 í OFL, hlaut 1.einkun á þeim öllum og 3 sinnum besti hundur.  Dimma tók þátt í 4 prófum í sumar 1 í BFL og 3 í OFL, fékk 1 einkun og besti hundur á öllum prófum og heiðursverðlaun í OFL á einu prófinu.Við hjá Heiðarbólsræktun leggjum mikið uppúr því að hvolpar fái heimili þar sem eiginleikar og vinnuvilji hundanna fær að njóta sín. Dimma er úr okkar ræktun og kemur undan ISFTCH Kolu og FTW-19 ISFTCH Edgegrove Appollo of Fenway (Ross) .  Árangur Kolu má sjá hér . Árangur Ross má sjá hérÁrangur Heiðarbóls Dimmu og bakgrunn má sjá hérÁrangur Huntingmate Atlasar og bakgrunn má sjá hér Ættbók Atlasar er hér neðst í myndunum.  hún kemur ekki fram á vef Retrieverdeildar nema ef opnaðar eru ættbækur afkvæma hans. t.d. hérÞað eru líka fínar upplýsingar um okkar hunda efst á þessari síðu þar eru meðal annars linkar á foreldra Atlasar og er bakgrunnur þeirra og skildra hunda mjög áhugaverður. Huntingmate AtlasHér að neðan má sjá myndir af skötuhjúunum.  Frekari upplýsingar gefur Heiðar, heidarsv@gmail.com, skilaboð á Heiðarbólssíðunni á facebook eða í síma 8255219Hér að ofan eru Dimma og Atlas eftir að Dimma varð í fyrsta sæti í OFL á Meistaramóti Retrieverdeildar og Atlas í öðru sæti.Atlas og DimmaAtlas og DimmaAtlas á sínu öðru veiðiprófi þar sem hann hlaut 1.einkun í BFL og besti hundur.Dimma í sínu fyrsta veiðiprófi í OFL og hlaut hún 1 einkun, besti hundur og að auki Heiðursverðlaun.Ættbók Huntingmate Atlasar</description>
Komnir hvolpar
      <description>21.mars 2019 gaut Kola 7 heilbrigðum hvolpum.  3 svartar og 1 gul tík, 3 svartir rakkar.Öllum heilsast vel, drekka vel og dafna.Kola stendur sig sem fyrr mjög vel í móðurhlutverkinu og sýnir yfirvegun.Það verður gaman að fylgja þessum nýju einstaklingum inní lífið.hvolparnir eru eins og áður sagði undan Kolu og Huntingmate Atlas.  Upplýsingar um foreldra eru hér Atlas og Kola það má sjá myndir á síðunni hér</description>
Hvolpar á leiðinni
      <description>ISFTCH Kola var pöruð við Huntingmate Atlas í janúar síðastliðnum.Í dag kom í ljós að hún er hvolpafull og eigum við von á hvolpum seinnihluta mars.Kola er íslenskur veiðimeistari og með sterkan bakgrunn úr veiði- og vinnulínum, báðir foreldrar Kolu koma frá Kolkuósræktun sem hefur um langt skeið verið leiðandi í ræktun á veiði- og vinnuhundum af labrador kyni. Upplýsingar um Kolu má sjá hér. http://data.retriever.is/DogProfile.asp?pedID=-1884569632Huntingmate Atlas var fluttur inn af Hrafnsvíkurræktun í fyrra frá vinum okkar í Noregi Trond og Aase sem eru með Huntingmate. Atlas er að sama skapi með sterkan bakgrunn í veiði- og vinnulínum frá Svíþjóð og Danmörku. Upplýsingar má sjá hér. http://data.retriever.is/DogProfile.asp?pedID=1569478550Allar frekari upplýsingar er hægt að fá með því að senda fyrirspurn hér í skilaboðum, tölvupóst á heidar@bl.is eða í síma 8255219.</description>
Sumarið byrjað
      <description>Það er gaman að komast inní hundasumarið.Skemmtilegt að fylgja eftir hvolpunum undan Kolu og Ross og sjá framfarir hjá þeim öllum.Þetta er sannarlega skemmtilegasti tíminn.Við Kola tókum þátt í okkar fyrsta prófi við Sílatjörn 2.júní, góð mæting var í prófið og frábær stemming í fínu veðri.Við fengum 1.einkun í ÚFL-B og fórum sátt frá þessum degi.Heiðarbóls Katla tók þátt í sínu fyrsta prófi og átti fínan dag, 2.einkun í BFL.  Eins og gefur að skilja var margt nýtt fyrir Kötlu og leystu þau Gulli verkefnið vel.Heiðarbóls Dimma er öll að koma til og bætist hratt í reynslubankan og þroskinn eykst.Gulli með Heiðarbóls Kötlu að fá upplýsingar um prófið frá Sigurmon Hreinssyni dómara.</description>
2018 sumarið framundan
      <description>Nú líður að því að við Kola förum í fyrstu próf sumarsins.  Ekki vantar áhugann og virðist ekki hafa gleymt neinu.  Heiðarbóls Dimma dóttir hennar og Ross er lofandi tík sem þarf meiri tíma.  Kemur í ljós hvort ég fer með hana í próf.  Allavega verður gaman að vinna með hana á æfingum og byggja hana upp. Skemmtilegur karakter.</description>
Sumarið 2017
      <description>Það var nú nokkuð óhefðbundið sumarið 2017 þegar kom að veiðiprófum.Kola gaut 9 hvolpum 17. febrúar og það var verðugt verkefni að sinna þeim og koma til nýrra eigenda.Við héldum einum hvolpinum henni Heiðarbóls Dimmu.Sökum gots og anna hjá okkur á heimilinu voru fyrstu prófin ekki á dagskránni fyrr en á Deildarviðburði Retriever deildar 14. og 16. júlí.  Við tókum þátt í krefjandi prófum og uppskárum 2. einkun báða dagana.  Kola var einnig skráð á Deildarsýninguna 15.júlí í vinnuhundaflokk.  Það fór þannig að hún fékk Excelent á þeirri sýningu. Sá flotti dómur og 2. einkun seinni daginn á deildarviðburði færði okkur Kolu Hólabergsbikarinn sem var ágætt að fá nafnið sitt á.næstu veiðipróf fóru fyrir lítið vegna lóðarrís og ferðalaga.  þannig að ekki voru tekin fleiri veiðipróf þetta sumarið.  Næsta vers var því að taka þátt í eins konar uppskeruhátið deildarinnar sem kallast Meistarakeppni.15 hundar tóku þátt og þar af tveir í Úrvalsflokki, við Kola og Ingólfur Guðmundsson félagi minn með Ljósavíkur Nínó.  það fór svo að Nínó fékk 91 stig af 100 mögulegum en við Kola 88 stig.  Við náðum því verðskulduðu 2.sæti.Ross pabbi hvolpana tók þátt í OFL í Meistarakeppninn og vann sinn flokk með glæsibrag, stjórnandi var Hólmfríður Kristjánsdóttir.Veiðitímabilið hófst í lok ágúst hjá okkur og er Kola búin að sækja þó nokkuð af fugli og fær vonandi meira að gera.  Nú er að bíða eftir rjúpu og njóta restar af veiðitímanum saman.Ég er byrjaður að þjálfa Dimmu og hitti núna þá hvolpaeigendur sem hafa áhuga reglulega.  Það gengur vel með alla hvolpana og bara spennandi tímar framundan.Hér er mynd af okkur Kolu eftir Deildarviðburðinn með Hólabergsbikarinn</description>
orðið tómlegt
      <description>Nú eru flestir hvolpar farnir til sinna eigenda.  Síðustu tveir fara núna eftir páskana.  Heiðarbóls Kappi og Heiðarbóls Sesar.Kola tekur þessu vel, engu að síður má sjá að hún tekur gestum með aðeins meiri varúð og virðist aðeins stressuð.  Nú tekur við hvolpauppeldi og að koma Kolu í þjálfun, en hún er bara í frekar góðu standi og ekki að sjá að þetta hafi haft nein áhrif á hana.Ein mynd af Dimmu sem minnir skemmtilega á Kolu þegar hún kom til okkar.  Verður spennandi að sjá karakter í þessum hvolpi og vinna með.</description>
Hvolparnir rúmlega 5 vikna
      <description>Hvolparnir urðu 5 vikna á föstudaginn. Þeir dafna mjög vel og stækka hratt.  Þeir eru nú allir komnir með nafn og eigendur bíða spennt eftir þeim.Fjólublár heitir Heiðarbóls DrekiBlár heitir Heiðarbóls KappiLjosblár heitir Heiðarbóls SkuggiGrænn heitir Heiðarbóls SesarLjós rakki heitir Heiðarbóls AtlasLjós tík heitir Heiðarbóls KatlaRauð tík heitir Heiðarbóls Emma Bleik tík heitir Heiðarbóls DimmaAppelsínugul tík heitir Heiðarbóls Kolka.Við hleypum þeim núna út á pall nokkrum sinnum á dag og það er eins og von er misgaman eftir veðri og aðstæðum.  Þeir njóta frelsins og veitir ekki af smá hreifingu.  Kola fylgist mjög vel með þeim og vaktar ef þörf er á að fara inn eða hún vill kíkja betur á þá.  Hún gefur samt sjaldnar og sjaldnar og þá oftast standandi í stuttan tíma.  Hún er orðin svolítið þreytt á þeim :) Skemmtilegir grallara sem koma alltaf með eitthvað nýtt á hverjum degi.Setti inn nokkrar myndir hér</description>
Hvolparnir 23 daga gamlir
      <description>Nú eru hvolparnir orðnir 23 daga gamlir og styttist í að þeir fari að borða með.  Allir dafna vel og er gaman að fylgjast með þeim þroskast og kynnast nýjum hlutum.Allir hvolpar eru lofaðir og bíða þeirra skemmtileg verkefni.komnar inn nýjar myndir hér</description>
Hvolparnir 2 vikna
      <description>Nú eru tvær vikur síðan Kola gaut 9 heilbrigðum hvolpum.  Hún hefur staðið sig með miklum sóma í móðurhlutverkinu og hafa þeir þyngst jafnt og þétt. Þeir eru nú búnir að þrefalda þyngd sína og dafna með miklum sóma.Fyrstu augun opnuðust í gær 2 mars og nú er einn eftir að opna í morgunsárið.Í dag er staðan sú að allir eru pantaðir og fara í áhugasöm verkefni hjá góðu fólki þegar þar að kemur.Bætti inn nokkrum myndum hér.Kola með hvolpana í morgun 3.3.2017 heldur betur stækkað.</description>
Kola og hvolparnir
      <description>Kola gaut 17 febrúar 9 hvolpum.Hún stóð sig með mikilli prýði og í heiminn komu 5 rakkar, 4 svartir og einn gulur, 4 tíkur, 3 svartar og ein gul.Elsa Hlín vinkona okkar var með okkur á meðan á þessu gekk og var ómetanlegt að hafa hana með þar sem við hjón vorum ekki með reynslu af þessu.Nú taka við spennandi timar að koma þessum 9 hvolpum til hunds og koma þeim í hendur nýrra eigenda sem eiga klárlega eftir að njóta þeirra.Allavegana verða þeir hjá okkur til páska og það er tími sem stendur til að njóta vel.Myndir frá gotinu má sjá hérKola fyrsta morguninn með gullmolana svo stolt og fín.  Gefur ekkert eftir í þessu hlutverki.</description>
Atlas okkar fallinn frá
      <description>Í dag var erfiður tími hjá okkur í Viðarrimanum. Atlas okkar greindist með ólæknandi æxli í kviðarholi og var kvaddur í dag.Að baki eru ómetanleg ár með þessum höfðingja. Vinátta og tryggð sem var einstök.  Það er ófáar ánægjustundirnar sem hann hefur fært mér út í náttúrunni og með vinum. Á sama tíma ómetanlegur fjölskyldvinur sem var alltaf til staðar og las aðstæður einstaklega vel. Hans verður sárt saknað af okkur öllum á sama tíma erum við þakklát fyrir góð 10 ár.Birna og Atlas voru sérstakir vinir alla tíð og hún tók saman þetta myndband sem lýsir lífshlaupi þessa kappa vel.Suðurhjara Atlas</description>
Er vika í þetta?
      <description>Kola ber sig vel, í góðu formi, við hreifum okkur talsvert tökum fellið af og til.  borðar aðeins meira en ekki að finna neina þreytu á drottningunni.</description>
Tvær vikur enn úff
      <description>Það gengur fínt hjá Kolu, borðar vel og góð hreyfing.  Við tökum smáæfingar annað slagið en mest er nú bara rölt um.Hún blæs út.</description>
Kola með verðlaunin
      <description>Nú þegar 3 bikarinn er kominn í hús var rétt að taka ein mynd áður en Kola yrði tvöföld.Heiðrun fyrir stigahæsta hund, besti hundur í flokki 7 sinnum, 4 sinnum Heiðursverðlaun, Ljósavíkurbikarinn, farand og eignabikar, Retrieverbikarinn í annað sinn, Veiðimeistara skírteini.</description>
Kola stigahæsti hundur 2016
      <description>Retrieverdeildin heiðraði í dag þá hunda og eigendur sem voru stigahæstir á sýningum og í veiðiprófum 2016.Kola bætti einni skrautfjöðurinni við í dag þar sem hún var heiðruð sem stigahæsti hundur á veiðiprófum 2016.  Það þarf ekki að orðlengja það að það er unun að vinna með þessum flotta hundi.Þetta er þriðji bikarinn sem hún vann til á árinu 2016 og mér vitanlega hefur enginn annar hundur unnið til svo margra bikara á einu veiðiprófstímabili.Það má sjá umfjöllun um væntanlegt got undan Kolu og Ross hér</description>
Heiðarbóls labrador ræktun
      <description>Við höfum fengið ræktunarnafnin Heiðarbóls samþykkt af FCI.  Tilvonandi hvolpar Kolu munu því bera þetta ræktunarnafn.  það má finna umfjöllun um pörun Kolu og Ross hér</description>
Kola í fréttunum
Kola á von á hvolpum
      <description>Það var ljóst í sónar í morgun að ISFTCH Kola er hvolpafull.  Kola var pöruð við Edgegrove Apollo of Fenway - Ross um miðjan desember og má reikna með goti eftir miðjan febrúar 2017 og afhendingu hvolpa um miðjan apríl.ISFTCH Kola er ræktuð af Guðmundi A. Guðmundssyni og á ættir sínar að rekja til öflugrar ræktunar á vinnu og veiðhundum langt aftur í ættir.  Ef skoðuð er ættbók hennar eru 14 af 30 forfeðrum veiðmeistarar, þar af 5 íslenskir. Kola varð sjálf veiðimeistari 2015 og hefur gengið mjög vel á veiðiprófum.  Kola er einstaklega þægilegur hundur í umgengni með mikinn vinnuvilja og því þægileg í þjálfun. Hún er öflugur veiðihundur hvort sem er að leita að bráð eða vísa á t.d. rjúpu og önd.  Báðir foreldarar Kolu eru frá Kolkuósræktun, Sigurmon og Þuríður sem standa að Kolkuósræktun hafa um langt skeið staðið að öflugri ræktun á labrador með aðal áherslu á veiði og vinnu þátt tegundarinnar. Árangur Kolu má sjá hér. Ættbók Kolu hér er umfjöllun um KoluRoss er í eigu Hrafnsvíkurræktunar sem Jens Magnús og Hólmfríður standa að.  Jens Magnús og Hólmfríður fluttu Ross inn frá Fenway ræktun í vor frá Englandi.  Jeremy Hunt sem stendur að Fenaway ræktun er einn af þeim ræktendum í Englandi sem hefur lagt sig fram um að standa vörð um vinnueiginleika labrador og skapgerð.  Ross hefur tekið þátt í einu veiðiprófi og fékk 1.einkun og var besti hundur í BFL.  Ross er yfirvegaður á heimili, kraftmikill og hraður í vinnu og lofar mjög góðu í þjálfun, prófum og veiði. Árangur Ross má sjá hér. Ættbók RossÞað er ástæða til að ætla að hvolpar undan þessu eðalpari verði góðir heimilishundar, gott efni í kröftuga vinnuhunda sem taka þjálfun vel.  Hér má sjá nokkrar myndir af þeim Við sem stöndum að þessu goti munum bjóða hvolpaeigendum uppá aðstoð við þjálfun og námskeið fyrir þá sem vilja.Upplýsingar hjá Heiðari í  síma 8255219 og heidar@bl.isUpplýsingar um Fenaway labrador má finna hérUpplýsingar um Kolu má meðal annars finna hér á síðunni.Upplýsingar um Kolkuós ræktun má finna hér og eins á facebook </description>
Atlas 10 ára
      <description>Höfðinginn Suðurhjara Atlas er 10 ára í dag.  Koma hans inní okkar líf var sannarlega upphaf af miklum áhuga á þjálfun hunda og að vinna með þeim.  Atlas hefur alltaf verið hvers manns hugljúfi, kraftmikill og góður félagi.Í morgun tókum við stutta göngu og í tilefni dagsins fékk sá gamli að sækja nokkrar sóknir.  Ekki fúlsaði hann við því og sótti af öryggi og hafði gaman að.Horfa á myndband</description>
Kola pöruð við Ross
      <description>ISFTCH Kola hefur verið pöruð við Edgegrove Apollo of Fenway - Ross, ef allt gengur upp má reikna með goti eftir miðjan febrúar 2017 og afhendingu hvolpa um miðjan apríl.  ISFTCH Kola er ræktuð af Guðmundi A. Guðmundssyni og á ættir sínar að rekja til öflugrar ræktunar á vinnu og veiðhundum langt aftur í ættir.  Ef skoðuð er ættbók hennar eru 14 af 30 forfeðrum veiðmeistarar, þar af 5 íslenskir. Kola varð sjálf veiðimeistari 2015 og hefur gengið mjög vel á veiðiprófum.  Kola er einstaklega þægilegur hundur í umgengni með mikinn vinnuvilja og því þægileg í þjálfun. Hún er öflugur veiðihundur hvort sem er að leita að bráð eða vísa á t.d. rjúpu og önd.  Báðir foreldarar Kolu eru frá Kolkuósræktun, Sigurmon og Þuríður sem standa að Kolkuósræktun hafa um langt skeið staðið að öflugri ræktun á labrador með aðal áherslu á veiði og vinnu þátt tegundarinnar. Árangur Kolu má sjá hér. Ættbók Kolu hér er umfjöllun um Kolu  Ross er í eigu Hrafnsvíkurræktunar sem Jens Magnús og Hólmfríður standa að.  Jens Magnús og Hólmfríður fluttu Ross inn frá Fenway ræktun í vor frá Englandi.  Jeremy Hunt sem stendur að Fenaway ræktun er einn af þeim ræktendum í Englandi sem hefur lagt sig fram um að standa vörð um vinnueiginleika labrador og skapgerð.  Ross hefur tekið þátt í einu veiðiprófi og fékk 1.einkun og var besti hundur í BFL.  Ross er yfirvegaður á heimili, kraftmikill og hraður í vinnu og lofar mjög góðu í þjálfun, prófum og veiði. Árangur Ross má sjá hér. Ættbók Ross  Það er ástæða til að ætla að hvolpar undan þessu eðalpari verði góðir heimilishundar, gott efni í kröftuga vinnuhunda sem taka þjálfun vel.  Hér má sjá nokkrar myndir af þeim   Við sem stöndum að þessu goti munum bjóða hvolpaeigendum uppá aðstoð við þjálfun og námskeið fyrir þá sem vilja.Upplýsingar hjá Heiðari í  síma 8255219 og heidar@bl.isUpplýsingar um Fenaway labrador má finna hérUpplýsingar um Kolu má meðal annars finna hér á síðunni.Upplýsingar um Kolkuós ræktun má finna hér og eins á facebook </description>
Árið 2016
      <description>Það er viðburðarríkt ár að baki hjá mér og hundunum.Kola er að skila einu besta ári sem kostur er á.  Tók 5 próf í ár og var í þeim tvisvar besti hundur, tvenn heiðursverðlaun, þrjár 1.einkunnir og tvisvar 2. einkun.  Á hverju ári er keppt um 4 bikara og í ár bættist við meistarabikarinn sem við Kola gátum ekki keppt í vegna veikinda hennar.  Fyrsti bykarinn er veittur sigahæsta hundi í samanlögðum prófum á Melgerðismelum og þann bikar tókum við Kola í ár, Ljósavíkurbikarinn.Annar bikarinn er veittur stigahæsta hundi á deildarsýningu og seinni prófdaginn á deildarviðburði, þar sem Kola tók ekki þátt í sýningu áttum við ekki möguleika á honum.3 bikarinn er Retriever bikarinn (Kolkuósbikarinn) sem veittur besta hundi seinni daginn í ágústprófunum. Kola var besti hundur á þessu prófi annað árið í röð og er það þriðja árið sem hann kemur heim þar sem Atlas vann hann 2013.4. bikarinn er síðan veittur stigahæsta hundi sumarsins samanlagt í öllum prófum.  Kola var stigahæsti hundurinn í ár og verður sá bikar afhentur 21 janúar 2017.Í ár bættist við 5.bikarinn sem er keppt um en því miður gátum við ekki mætt þar vegna skottsvesens á Kolu. Það er því ljóst að hún er fyrsti hundurinn til að hampa 3 bikurum eftir sömu vertíðina og eins eini núlifandi hundurinn með 4 heiðursverðlaun.Það er ljóst að tilgangur okkar samstarfs er ekki verðlaunasöfnum, heldur að eiga gott samstarf og njóta okkar í því sem okkur finnst skemmtilegast.  Kola er einstaklega þægilegur hundur að vinna með og mjög einbeitt í vinnu.  Hún er líka sallaróleg heimafyrir og hvers manns hugljúfi. Að loknu veiðiprófstímabili tók veiðin við, Atlas sá um gæsatúrana þar sem Kola var að jafna sig á sári á skotti sem hélt henni frá i einn og hálfan mánuð. Kola var síðan í aðahlutverki í rjúpunni og stóð sig frábærlega.  Atlas kom þó með okkur í tvo túra og naut sýn mjög vel.Atlas hefur átt rólegra ár, er í flottu formi þó að hann verði 10 ára þann 26 des, kemur í allar göngur og virkaði fínn á gæsaveiðum haustsins.Hér erum við á Melgerðismelum með verðlaun helgarinnar og fyrsta bikar ársins.Hér er Kola með annan bikar sumarsins besti hundur seinni daginn í Húsafelli í ágústprófinu, með Retriever bikarinn (Kolkuós bikarinn)</description>
Sumarið 2016 
      <description>Það er búið að vera viðburðarríkt sumarið fram til þessa hjá okkur Kolu.4 próf að baki, 3 1. einkunnir og ein 2.einkun.  Tvenn heiðursverðlaun og stigahæsti hundur helgarinnar fyrir norðan og þar með var Ljósavíkurbikarinn í höfn.Síðustu helgi tókum við þátt í veiðiprófi á Murneyrum þar sem Sigurmon M. Hreinsson dæmdi.  Fengum 1.einkun og heiðursverðlaun.hér erum við eftir prófin á Melgerðismelum, bestu hundur fyrri daginn með 1.einkun og hv, seinni daginn með 2. einkun en stigahæsti hundur helgarinnar með Ljósavíkurbikarinn.Þessi mynd er frá Murneyrarprófinu, Sigurmon dómari,  Svava og Stormur 1 einkun og bh í BFL,  Ævar og Míla 1.einkun, HV og bh í ÚFL-B, ég og Kola með 1.einkun og HV í ÚFL-B, Guðmundur og Klettur með 2.einkun og bh í OFL, Diddi fulltrúi HRFÍ</description>
Sumarið 2016
      <description>Það er ansi langt síðan eitthvað hefur komið hingað inn. Hundaveturinn fór eins og ætlað var í nokkra veiðitúra og talsvert var gengið á fjöll og í nágrenni RVK.Atlas er enn í góðu formi þó að hann sé orðinn níu og hálfsárs og hefur enn gaman af göngutúrum og verkefnum.  Honum er nú ekki haldið mikið að þjálfun en fær eitt og eitt verkefni.Kola kemur í fantaformi undan vetri og við fórum í fyrsta prófið í síðustu viku 10 maí.  Kjartan Lorange var prófdómari og setti upp próf í ÚFL þar sem þrír hundar voru á pósti.  Allir hundar skiluðu fanta góðu prófi og voru í fyrstu einkun.  Kola vann þetta hratt og örugglega algjörlega yfirveguð á pósti og klár i allt.Kannski að við setjum hér inn fleiri fréttir í sumar. Hugmyndin er að taka þátt í kannski 2-3 prófum í viðbót, látum aðstæður og aðsókn ráða því.Góðar stundir.</description>
Árið 2015
      <description>Búið að vera viðburðarríkt ár hjá mér með hundana.Hæst ber Veiðimeistaratitill Kolu, en hún varð íslensku veiðimeistari ISFTCH í sumar, vinnuárangri skilaði hún í maí og síðan sýningarárangri á deildarsýningu í júlí.  Atlas átti flotta sýningu á deildarsýningunni þar sem hann var sýndur í Öldungaflokki og var besti rakki tegundar.Veiðtímabilið á þessu ári var fínt, fórum nokkra túra og erum sátt, Kola á ennþá eitthvað ólært eins og gengur en stóð sig engu að síður mjög vel og er hreint frábær veiðifélagi.  Atlas er nú að ljúka sínum veiðtúrum, ekki vegna heislu heldur frekar að honum hefur ekki verið sinnt sem skildi og er því aðeins útundan.  Magni bróðir tók hann með sér tvo daga á rjúpu og ég hafði hann með 2 daga líka þannig að hann fékk nú alveg að kynnast þessu ásamt nokkrum andatúrum.Kola tók þátt í 5 veiðiprófum í ÚFL-B og fékk 4 sinnum 1.einkun og b.h. tvisvar, eina 2.einkun.  flottur árangur og þriðji stigahæsti hundur sumarsins. Atlas tók þátt í tveimur prófum og er að ég held elsti hundur sem hefur tekið þátt í sækiprófi á vegum Retrieverdeildar, 0 og 3 einkun var niðurstaðan. Hann skemmti áhorfendum og hafði gaman að.Annars er þetta hundalíf ósköp líkt, Gönguferðir í náttúrunni og æfinga ásamt skemmtilegum veiðprófum og veiðitúrum.Atlas og Kola eftir flottan dag á fjöllum í Mývatnssveit.</description>
Veiðimeistartitill í höfn
      <description>Í dag barst okkur staðfesting á því að Kola hefði hlotið titilinn Íslenskur Veiðimeistari.  Það er ekki launung að við höfðum stefnt að þessu og lokið okkar þætti sem var vinnan og prófin í fyrsta prófinu okkar í sumar 13 maí.  Það var síðan að fá bygginardóm sem var klárað á deildarviðburðinum 11 júli í sumar. Það hefur verið einstaklega gaman að vinna með Kolu að þessu markmiði og að þjálfa hana.  Mjög svo móttækileg og vinnufús með afbrigðum.  Viljinn til að gera kallinn ánægðan er eitthvað sem verður alltaf gott að vinna með.  Kola hefur tekið þátt í 17 prófum, verið 5 sinnum besti hundur, fengið 2 svar heiðursverðlaun, hún hlaut Retrieverbikarinn fyrir að vera besti hundur seinni daginn á ágústhelginni í Húsafelli 2015 og það hefur ekki enn komið próf þar sem ég hef farið ósáttur frá dagsverkinu, þ.e. hún hefur alltaf skilað jákvæðu og góðu verki. Við svona tímamót vil ég þakka Guðmundi og Sólveigu fyrir að treysta mér fyrir henni, Guðmundi, Ingólfi, Sigurmon og Guðjóni fyrir góð ráð og kennslu við þjálfun þó fyrst og fremst Kolu sjálfri.</description>
Húsafellspróf
      <description>Frábær hundahelgi að baki í Húsafelli og þar í kring. Tvö veiðipróf um helgina og báðir hundar skráðir. Atlas var skráður bæði til að fylla upp í prófin og svo var gaman að sjá hvort hann næði hinni eftirsóttu 1.einkun sem hann vantaði til að verða veiðimeistari. Það gekk ekki enda sjálfstæður gamall hundur á ferð, 0 fyrri daginn og 3 einkun seinni daginn. Stóð sig vel og er líklega elsti hundur sem hefur tekið þátt í veiðiprófi, þó ekki neitt rannsakað. Kola var einnig skráð og það er svo sem ekki launung að við gerðum okkur von um góðan árangur. Hún stóð undir væntingum, 1.einkun fyrri daginn með frábæra umsögn og að sögn dómara bankaði á besta hund, 1.einkun seinni dag, besti hundur og vann þar með Retrieverbikarinn sem er elsti bikar sem keppt er um hjá okkur Retrieverfólki í veiðiprófum þar sem hann tók við af fyrirrennara sínum Haddabikarnum. Erum að sjálfsögðu mjög sátt með að fara með hann heim, Atlas vann þennan bikar 2013 og erum við því með tvö nöfn á honum. Atlasi er þakkað skemmtileg próf í gegnum árin og Kola verður í þessu eitthvað lengur. Nú bíðum við bara eftir skírteininu fyrir veiðimeistarann</description>
Vorið og sumarið
      <description>Það hefur ýmislegt drifið á daga okkar síðan síðast var skrifað hér inn.Kola hefur tekið þátt í 3 veiðiprófum, 1 einkun í tvö skipti og besti hundur einu sinni, 2.einkun einu sinni.Kola tók jafnframt þátt í deildarsýningu Retrieverdeildar og náði þar "GOOD" sem er lágmark til að geta sótt um Veiðimeistara titil.  Við höfðum þá náð tilskildum vinnárangri í maí s.l.  Atlas hefur nú ekki verið skráður í próf þetta árið, hins vegar tók hann þátt í deildarsýningunni í öldungaflokki, hann komst í úrslit í rökkum og var valin 4 besti rakki tegundar sem við vorum jög sáttir með.  í öldungaflokknum var hann í iöðru sæti.framundan er að klára sumarið og næsta vers eru tvö próf 8 og 9 ágúst í Húsafelli þar sem Kola er skráð.Hér eru þau eftir vel heppnaða Deildarsýningu 12 júlí s.l.</description>
Hundalíf um páskana
      <description>Nokkrir af æfingarfélögum okkar ætla að taka þátt í fyrsta prófi ársins sem verður 11 apríl n.k. Æfingar hafa aðeins dregið dám af þessu og páskahelgin nýtt vel.  Við Guðjón fórum skemmtilega sveitaferð í gær að aðstoða bónda nokkurn á vesturlandi.  Í kjölfarið var kíkt í fjöruna og ath hvort hægt væri að ná í nokkra máfa.  Í stuttu máli var ekki mikið flug og við náðum bara einum máf.  Kola fékk að spreyta sig í briminu og stóð sig bara vel.  Þarf samt að fá meiri veiðireynslu.  Það kemur að því.</description>
Styttist í vorið
      <description>það styttist í vorið þó að veðurguðirnir séu á því að halda vetrinum aðeins lengur.  Fyrsta próf er 11 apríl n.k.  Við Kola verðum ekki þar, samt þarf að undirbúa sig.Erum með Veiðifélagan Lady í pössun frá Guðjóni vini mínum, gaman að kynnast henni. Fjörugur hundur eins og hálfs árs.  Vel siðuð og fín í alla staði. Hér er mynd af þeim slökum, eins og sjá má allir litir í húsinu.</description>
Veiðipróf í Danmörku
      <description>Datt niður á skemmtilegt myndband af veiðiprófi í Danmörku, Klúbburinn sem hélt  þetta veiðipróf kallar sig Retrieverens Jagthundklub og er ekki systur klúbbur okkar sem erum innan HRFÍ.  Þetta er einhverskonar klofningur út úr þeirra Retrieverklúbb. Engu að síður er þetta þeirra meistarpróf og þarna hefur verið lagt mikla vinnu í að taka prófið upp, textasetja það og ég hef ekki rekist á betra efni fyrir hundaáhugafólk sem sýnir hverning svona próf fer fram.  Ég veit ekki hvort próf innan Dansk Retriever Klub eru alveg eins, njótið þess að sjá góða hunda í vinnu og skemmtilegar hefðir í kringum veiði.http://rjk.dk/proever/markproevemesterskab/video_fra_mpm_2014/</description>
Jóladagur 2014
      <description>Þar sem Atlas er nú í "lóðarrís útlegð" í Grindavík,  fórum við Kola tvö í jólagöngutúrinn.  Við tókum góðan túr í Gufunesið og létta æfingu til að hlaupa af okkur jólamatinn sem kominn var á þessum tíma.  Kola fékk að hlaupa aðeins meira meðan ég beið eftir henni.  Það var að sjá að hún kynni þessu betur en veisluhöldum.Gleðileg jól</description>
Rólegt
      <description>Frekar rólegt í hundaheiminum.  styttist þó í að hægt verði að fara á veiðar aftur.</description>
Þróun Retriever hunda
      <description>Þróun Retriever:  Eftir næstum 8 ár sem hundaeigandi er ég vissulega ekki mesti reynsluboltinn í bransanum.  Hef þó síðan ég hóf kynni mín af Labrador séð að þróun tegundarinnar er augljóslega í tvær áttir.  Það er gjarnan mikið skrifað um þetta og sitt sýnist hverjum.  Ekki er óalgengt að umræðan verði persónuleg og fólk verji jafnvel sína hunda og finni að hundum annara.  Ég sé líka að þessi þróun er talsverð í Golden Retriever en eitthvað minni t.d. í Flat Coated, kunnugir segja mér að það sé samt að fara á sama veginn.  Í fljótu bragði sýnist mér að þessari þróun verði ekki snúið af einstökum ræktendum eða litlum ræktunardeildum.  Það er nokkuð ljóst að áhugasvið fólks er mismunandi og þeir sem fara út í að rækta hreinræktaða hunda vilja eðlilega geta selt þá og þá á sem hæðstu verði.  Það er því ekki óeðlilegt að þeir sem hafa áhuga á sýningum beini sinni ræktun inná þá hlið og þeir sem hafa áhuga á prófum beini sinni ræktun í þá áttina.    Án þess að hafa aflað mikilla gagna hef ég þó farið eitthvað yfir myndir og reglur á veiðiprófum aftur í tímann.  Mér sýnist að þótt standard fyrir tegund hafi kannski ekki breyst mikið hafi t.d. hundar sem skora á sýningum heldur stækkað og komið hafa til titlar sem ekki krefjast vinnuárangurs.  Eins er með hunda sem ná árangri í veiðiprófum, þeir hafa lést og í sumum löndum hafa komið titlar sem ekki krefjast sýningarárangurs.  Norðurlöndin hafa þó haldið í sýningarárangur fyrir veiðiprófstitla en gefið eftir í kröfum um veiðiprófsárangur fyrir sýningartitla.   Mín skoðun er að þetta sé þróun sem á sér eðlilegar skýringar, drifin áfram af áhugafólki um eigin árangur og skemmtun,  það megi færa fyrir því rök að ekki sé verið að vinna að því að um eina tegund sé að ræða.  Í raun komnar tvær tegundir.  Hvað er til ráða, ég sem leikmaður sé ekki aðra lausn en breytingu á viðmiðum á sýningum og í veiðiprófum ef á að sameina þessa póla.   Ef skerpt væri á byggingarreglum og þær túlkaðar nær því sem við köllum dual hunda, of stórir hundar fengju einfaldlega ekki gott skor, krafist vinnuárangurs til að fá titla.  Að sama skapi yrði skerpt á kröfu um sýningarárangur fyrir veiðiprófstitla.    Eins og áður segir tel ég þetta draumsýn og að það næðist ekki samstaða um þetta á hinu stóra sviði þar sem þetta er málefni sem snertir fólk á tilfinningasviðinu og síðan eru auðvitað margir með sterkar skoðanir sem falla ekki að þessu sjónarmiði.    Niðurstaða mín af þessum vangaveltum er því að í raun séu komnar tvær tegundir á sitthvorn endann, hvort sem það verður svo einhverntíman samþykkt.tveir LABRADOR RETRIEVER hundar eftir góðan morgun.</description>
Október og haustið
      <description>Nú er próftíminn að baki og veiðitíminn byrjaður fyrir nokkru.  Við höfum ekki verið mjög dugleg en þó náð í nokkra fugla og notið okkar.  Kola fékk sína eldskírn í byrjun mánaðarins og stóð sig með prýði.  Það þarf að læra þetta líka.</description>
September og síðasta próf sumarsins
      <description>Í dag tókum við Kola þátt í síðasta prófi sumarsins.  Prófið var við Draugatjörn, prófdómari var Sigurmon Hreinsson, dómaranemi var Kjartan Lorange.  Kjartan setti upp ÚFL-B sem Kola tók þátt í og setti upp frábært próf sem líkti mjög eftir veiðum og reyndi talsvert á þá þætti sem ÚFL hundar eiga að kunna.  Sigurmon var hins vegar dómarinn.Við Kola áttum frábæran dag og vorum líka heppin með makker eins og oftast, Kolkuós Númi sem Hávar Sigurjónsson á var á pósti með okkur og þeir félagar með sitt fyrsta ÚFL próf stóðu sig með mjög vel.Þetta endaði með 1.einkun og Heiðursverðlaunum og besti hundur í flokki.Það er svo ótrúlega gaman að vinna með þessari tík sem vill allt fyrir mann gera, óþreytandi og vinnuvilja eins og best gerist.  Sumt af þessu er þjálfun, hins vegar hefur hún sýnt mér frábæra vinnu frá upphafi í svo mörgum þáttum án þess að það hafi verið æft svo mikið.  Nú förum við inn í veturinn og förum vonandi á einhverjar veiðar, síðan hlökkum við til næsta sumars.Hérna er hún með verðlaun dagsins, Besti hundur í ÚFL-B og Heiðursverðlaun.</description>
Ágúst staðan
      <description>Eins og fram kom í fyrri pósti var alvaran komin í prófunum hjá Kolu, síðan síðast erum við búin að fara í 3 ÚFL próf og fá aðra einkun tvisvar og fyrstu einkun einu sinni.  Síðasta helgi var prófhelgi en tvö próf voru á Snæfellsnesi rétt við Laugagerðisskóla.  Dómari var Øyvind Veel frá Noregi.  Fyrri daginn fengum við fyrstu einkun í mjög skemmtilegu en krefjandi prófi þá sérstaklega á stöðugleika og yfirvegun.  Kola var hreint frábær og lítið hægt að setja útá, hæll og afhendingar.Seinnidaginn var sett upp próf þar sem líkt var meira eftir veiðum en maður hefur oft séð áður.  Sama var uppá teningnum, Kola stóð sig mjög vel, fékk sömu athugasemdir afhendingar og hælvinna.  Hins vegar varð okkur pínu á þar sem hún breikaði einu sinni og féllum því niður í aðra einkun. Frábær helgi að baki og ég enn sem fyrr mjög sáttur við vinnuna hjá þessum unga hundi.Hér eru tvær myndir sem Sólrún Helgadóttir tók og leyfði mér að nota.  Annars vegar er Kola að koma inn úr sókn og má sjá ákveðnina í að koma sér úr vatninu og beint inn. frábær mynd, svo er ein "veiðimynd".</description>
Prófin og sumarið
      <description>Eftir Murneyrar skelltum við Kola okkur í tvö próf hjá Johnny Henriksen í Húsafelli helgina 11-13 júli í Úrvalsflokki ÚFL,  ásamt því að Kola var sýnd á sýningu 12 júlí.Johnny setti upp flott próf og reyndist fyrra prófið helst til of þungt fyrir Kolu, hún vann vel úr því sem var innan hennar marka og fórum við sátt í bílinn.  Einkunin var samt núll þar sem hún leysti ekki atriði sem Úrvalsflokkshundur á að leysa.Á laugardeginum var hún sýnd og ekki vafi að þetta var fallegasti hundurinn :) Borge sem var dómari þarna var hins vegar ekki á því að hleypa henni í gegn og fékk hún þar sitt annað núll þessa helgi.  Við kippum okkur nú ekki upp við það og finnum einhvern sem kann að meta svona fallegan hund.Á sunnudeginum tókum við næsta próf og gekk það mjög vel.  Smá hnökrar sem við tökum á okkur og lærum af ollu því að við fengu aðra einkun, engu að síður frábær vinna hjá Kolu og skemmtileg helgi með góðu fólki að baki.Núna er ekki aftur snúið, komin í ÚFL-B sem kallar á ekkert minna en fullkomna vinnu.Eftir prófin tókum við mynd af þeim systkynum Kolu og Krapa með Heiðursverðlaunin frá Murneyrum. Kola með Elsu Hlín í sýningarhringnum.</description>
Heiðursverðlaun á Murneyrum
      <description>Það var heldur betur flott próf á Murneyrum við Þjórsá í dag.  Sigurður Magnússon dómari setti upp flott próf í öllum flokkum og við Kola vorum með Mumma og Krapa bróður Kolu á pósti.  Það er skemmst frá því að segja að við Kola tókum óaðfinnanlegt próf og sama má segja um Mumma og Krapa.  Báðir hundar fengu fyrstu einkun og Heiðursverðlaun.  Krapi var síðan valinn besti hundur í flokki og eins og nærri má geta var ekki margt sem bar á milli hjá þessum hundum.2012 fengu 3 hundar HV yfir sumarið, í kjölfarið á því ákvað stjórn að þeir hundar sem fengju HV fengju pening og var hann græjaður ómerktur.  2013 fékk enginn HV og síðan þegar kom að því í dag voru peningar auðvitað ekki á staðnum.  Hér er mynd af Kolu með sinn sem var í geymslu hér heima.  við færum svo auðvitað Krapa hann merktan í næstu viku.Mummi og Sólveig takk kærlega fyrir þennan flotta einstakling hana Kolu, hún hefur allt sem ég vildi hafa í henni og það er í minum höndum að klára þessa vinnu.  Efniviðurinn er fyrir hendi.  Hér er mynd af okkur Kolu að rifna úr monti og svo ljósmynd af umsögn dómara í dag.</description>
Júní
      <description>Nú er komið vel inní sumarið og við höfum því miður ekki getað tekið þátt í síðustu 5 prófum, lóðarrí og annir í öðru hafi haldið okkur frá.Stefnan er tekin á próf um næstu helgi við Murneyrar og svo auðvitað Deildarviðburðinn þar sem Johnny Henriksen mun dæma próf 11 og 13 júlí í Húsafelli og svo verður sýning á laugardeginum 12.  Búið að skrá Kolu í allan pakkan og sjáum til hvort Atlas fær að fara á sýningu og svo sem eitt próf.spókað sig í skugganum í gær.</description>
Maí verkefnin
      <description>Við Kola vorum skráð í veiðipróf ínæstu viku, Náttúran kallaði og Kola farin að Lóða.  Verðum því fjarri góðu gamni þennan mánuðinn. Vonandi getum við tekið 1-2 próf í júní.Hér eru myndir af okkur frá síðasta prófi.</description>
Veiðipróf við Akranes
      <description>Við Kola tókum þátt í okkar öðru veiðiprófi þetta sumarið við Akranes í gær 26 apríl.  Halldór Garðar Björnsson dómari setti upp skemmtilegt próf í frábæru veðri og eins og þeir þekkja sem hafa tekið þátt í prófi við Akranes eru aðstæður mjög góðar og gaman að fylgjast með prófinu.Ég var mjög sáttur við Kolu, það eru smávægilegir hnökrar sem við eigum eftir að vinna í. Hún átti samt skýnandi dag og fékk 1.einkun.Í morgun fórum við smá náttúruferð og vorum ekki ein í ferðinni. </description>
Næsta verkefni
      <description>Eins og kom hér fram fyrir viku tókum við Kola þátt í okkar fyrsta OFL próf.  Var sáttur við hana svona yfirleitt, samt voru nokkur atriði sem við þurufm að vinna í og þannig verður það.  Nú er búið að skrá settið á næsta próf á Akranesi.  Það ýtir á okkur að vinna í þessum þáttum og vona svo að okkur takist betur upp.Flott æfing í morgun með Guðjóni og hans hundum þar sem allir hundar voru að gera fína vinnu.Við hlökkum til næsta verkefnis.</description>
Fyrsta próf sumarsins
      <description>Í gær fórum við Kola á fyrsta veiðipróf sumarsins.  Þetta var skemmtilegur dagur með frábæru prófsvæði.  það má segja að í prófi svona snemma árs hrósi maður happi ef ekki rignir, það var í lágmarki í gær.Prófið var við Seltjörn vestast í tjörninni þar sem eru tangar, hólmar og sef við vatnið og góðir móar í frjálsa leit.Dagur Jónsson var dómari og setti upp fínt próf, reyndar talsvert krefjandi í OFL, hefði að ósekju mátt keyra prófið hraðar í gegn og er það eitthvað sem við sem deild megum hafa í huga og vinna að með dómurum.Við Kola tókum þátt í okkar fyrsta prófi í Opnum flokki (OFL) og þóttumst nú nokkuð vel undirbúin, sem kom á daginn.  Var ég á því að þarna hefðum við gert bara gott próf og allir í brekkunni sammála. Eins og gjarnan þegar maður horfir á sig og sína þá leggur maður þungann í það sem vel gekk og má Kola eiga það að við áttum góðar markeringar í gær.  Það er skemmst frá því að segja að Dagur dómari var ekki eins ánægður með þetta próf okkar Kolu og taldi meðal annars að hún mætti vera betri í markeringum og gaf okkur 3.einkun. Þetta var nú ekki í fyrsta skipti sem sýn dómara er önnur en mín og samferðamanna en núna fannst mér keyra um þverbak. Tókst nú að kingja þessu og anda með nefinu, er þakklátur vinum og eiginkonu að vera boxpúðar.þegar ég er svo búinn að lesa dóminn og aðra dóma líka, tekst mér að horfa fram hjá þessu með markeringarnar.  Þegar dómurinn er lesinn og hann má lesa á vef Retriever deildar eins og aðra dóma í OFL þá eru þarna hlutir sem við Kola megum til með að laga til að ná betra prófi.  Þess vegna fórum við í próf til að prófa við þessar aðstæður hvernig gengi og hvar við stæðum í samanburði við kröfur og aðra þátttakendur.Það er mikilvægt að dómarar sem og aðrir starfsmenn séu réttlátir og geri vel grein fyrir sínu mati, það er líka mikilvægt að lesa dómana sína yfirvegað og í fjarlægð. Ég er enn á því að við höfum átt frábærar markeringar í gær sem er ekki í takt við það sem sett er í umsögn og er það miður, þetta var bara ekki vítið sem réði úrslitum.  Leikurinn hefði þurft að vera betri.Ég tek með mér að við Kola áttum gott próf sem hægt er að byggja á, við þurfum að skerpa á mikilvægum hlutum til að gera betur.Ég óska öllum til hamingju með árangurinn í gær og hlakka til að hitta ykkur aftur.Hér er mynd af Kolu frá því í gær.</description>
Kola 2 ára
      <description>Það eru 2 ár í dag síðan hún Kola kom í heiminn.  Það hefur verið gaman að vinna með henni þennan tíma sem hún hefur verið hjá okkur.  Hún er glaðleg og skemmtileg og einstaklega vinnusöm.Við þökkum þeim Guðmundi og Sólveigu fyrir að treysta okkur fyrir þessum gullmola sem á klárlega eftir að gleðja okkur um komandi ár.</description>