|
ATLAS LABRADOR RETRIEVER |
|
22.01.2012 20:40Útivist og æfingLoks var hægt að fara í alvöru göngutúr með Atlas, höfum verið stopp vegna skurðar á þófa hjá Atlasi og anna hjá mér. Fórum í morgun frábæra ferð um Úlfarsfellið enn einu sinni. Ekkert jafnast á við íslenskan morgun í logni og snjó. Síðan var haldið á æfingu um miðjan daginn hjá Guðjóni (Hólabergsræktun) þar sem hann er með æfingu fyrir hvolpana undan Atlasi og Lísu. Frábærir hundar og eigendur. Það var gaman að fylgjast með áhuganum bæði hjá hundum og mönnum. Frábær dagur að baki setti inn nokkrar myndir hér takk fyrir mig Heiðar á mynd: Andrés og Tumi, Silli og Boss, Ágúst og Orka, Guðjón, líf og Lísa, Atlas, Knútur og Stubbur ![]() 01.01.2012 10:04Gleðilegt árGleðilegt ár, þetta var að vonum flott gamlárskvöld í faðmi fjölskyldu. Atlas kippir sér ekki upp við skotin og hefur bara gaman af þessu öllu. Læt fylgja með eina af mínum uppáhaldsmyndum frá áramótum og jólahátíð. Tekin 1984 á Siglufirði 26.12.2011 12:515 áraÍ dag eru 5 ár síðan Atlas fæddist austur í Vík í Mýrdal. hann var einn af 9 systkinum, 8 lifðu og var hann eini guli hvolpurinn. Í janúar 2007 pöntum við hann hjá ræktanda og fáum afhendann 22 febrúar 2007. Hann hefur sannarlega verið gleðigjafi þennan tíma. Á þessum tíma höfum við tekið þátt í 4 sýningum hjá HRFI og gengið mjög vel, 15 veiðiprófum og komnir mun lengra en ég vænti af okkur. Árangur má sjá hér . Atlas hefur verið notaður við pörun 3 sinnum og fæddir eru 13 hvolpar undan honum. Það má sjá þá hér Fórum í gær og í dag í Úlfarsfellið sem er okkar uppáhalds staður fyrir göngutúra. Atlas þreytist ekki á að leita uppi fugla og hlaupa um. Í gær var talsverð úrkoma og við komum ekki auga á neitt, var því bara kafað eftir músum í snjóinn. Í dag var hávaða rok og kallt, fundum samt nokkrar rjúpur niður í skógarjaðrinu. Nú er Atlas á besta aldri og um að gera að njóta þeirra stunda fyrir okkur báða við veiðar, göngur og æfingar. kv. Heiðar 24.12.2011 16:00Gleðileg jólÞá eru blessuð Jólin að skella á, tíminn líður og um að gera að njóta þess sem hver stund hefur uppá að bjóða. Haustmánuðir hafa einkennst af ferðalögum tengdum vinnu og hefur það valdið töfum frá veiðisporti og öðru því tengdu. Það hefur sinn gang og nú er að sjá hvort vormánuðir gefi kost á æfingum og veiði. Hér verður alla vega tekið á móti jólum af yfirvegun og leitast við að njóta þeirra með fólinu okkar. Hér er Atlas eftir að hafa loks fengið 1 einkun í ÚVFL og það er engu líkara en hann hafi vitað að loks gekk þetta upp. Alla vega var hann sperrtur. Góðar stundir og jóla kveðja, Heiðar 04.12.2011 13:56Létt æfingEkki verið friður til veiði né æfina fyrir vinnu og öðru amstri síðustu vikurnar. Tókum stutta æfinum í snjónum í morgun. Atlas var greinilega klár í slaginn, 29.10.2011 08:42Fyrsti í RjúpuVið Atlas fórum í rjúpu hér á Suðurlandi með Kalla frænda mínum. Vorum í þoku þann tíma sem við vorum í fugli, náðum samt ágætri veiði hvor um sig og sáttir við flottan dag. 06.10.2011 09:52RjúpaÞá er komið í ljós að við félagar fáum að ganga til rjúpna með annað að markmiði en taka myndir af þeim. Það er margt búið að rita um þessi mál og sitt sýnist hverjum. Það er mikilvægt að hafa í huga að til að viðhalda þessum rétti okkar veiðimanna þarf að standa vel að rannsóknum og það starf þarf að vinna í sátt. Við tökum þessum dögum fagnandi og hlökkum til. kv. Heiðar 18.09.2011 17:14RjúpaVið Atlas fórum í fjallið í gær, þá voru liðnar þrjá vikur alla vega frá síðustu heimsókn. Á ferð okkur urðu ekki margar rjúpur og var í ekki í takt við það sem hafði verið síðast. Í gær voru þetta 3 smáir hópar samtals um 10 fuglar. Fórum aftur í morgun og þá var veðrið búið að þjappa þeim aftur saman, fljótlega komnir í um 40 rjúpna hóp og ekki færri en 60 fuglar í heildina. Ekki leiðinlegt þó að ekki megi veiða þarna er gaman að fylgjast með viðkomunni og hvað maður kemst ótrúlega nálægt þeim. Eins leiðist Atlasi ekki að hafa einhvern tilgang í fjallgöngunni. Tók eina á símann í gær sem gæti verið í betri fókus: kv. Heiðar 27.08.2011 23:42Loksins 1.einkun í ÚrvalsflokkiTókum þátt í flottu veiðiprófi við Draugatjörn í dag. Dagur Jónsson var dómari og setti upp flott próf fyrir alla flokka. Skorið í dag var gott og voru allir þátttakendur í einkun og allir nema einn með 1.einkun. Atlas stóð sig mjög vel og við lönduðum okkar fyrstu 1.einkun í ÚVFL eftir að hafa fengið 3.einkun 6 sinnum í röð, fyrir það hafði okkur gengið mjög vel í BFL og OFL sjá hér árangur
17.08.2011 11:27Hvolpa hittingurí gær 16 ágúst hittum við nokkra hvolpaeigendur undan Atlasi og Lísu, mættir voru Hólabergs Tumi, Hólabergs Konný, Hólabergs Orka, Hólabergs Stubbur og Hólabergs Boss. Það var gaman að sjá hvað þetta voru flottir hvolpar og eigendurnir áhugasamir. Nokkrir þessara hvolpa eru hugsaðir sem veiðihundar ásamt því að vera góðir heimilishundar. Kynni mín af þeim lofa góðu, yfivegaðir og vinnufúsir sem er góð blanda. Guðjón kynnti fugla fyrir þessum tæplega 6 mánaða hvolpum og voru allir að gera fína hluti, það sem út af stendur er alla vega ekki neitt til að hafa áhyggjur af með unga og lítið þjálfaða hvolpa. Guðjón að kasta fugli fyrir Hólabergs Konný. ![]() 05.07.2011 16:36DeildarviðburðurÞá er helgin að baki. Vitað var að þessi hundahelgi þ.e. 2 og 3 júlí í ár yrðu eitthvað meira en bara veiðipróf. Þar sem undirritaður hafði látið hafa sig í að vera prófstjóri og það í fyrsta skipti og þá með erlendum dómara. það var frábært að kynnast þessu verkefni á þennan hátt. Dómarinn Lars Mertz frá Danmörku var fínasti maður sem kunni sitt fag. Prófið var vel upp sett og klárað á þessum dögum BFL á laugardegi með 7 hundum og síðan OFL og ÚVFL á sunnudeginum 4 í OFL og 8 í ÚVFL. Við Atlas héldum okkur við 3.einkun í ÚVFL hins vegar var besti hundur dagsins Lísa sem Guðjón vinur okkar stjórnar og fékk þar með þá einkun sem vantaði uppá til að geta sótt um Veiðimeistaratitil. Við verðum aftur með þann 16 júlí við Villingavatn og sjáum hvort við komumst uppúr förunum. Þarna er verið að setja prófið, líkað ekki illa að hafa orðið svona inná milli :) ![]() 13.06.2011 11:28Veiðipróf við Melgerðismela í Eyjafjarðarsveit, 11 og 12 júní 2011Við Atlas tókum þátt í prófi sem haldið var við Melgerðismela í Eyjafjarðarsveit um helgina, þetta var frábært próf á flottum stað. Mikið að nýliðum og naut ég þess að vinna við prófið allan laugardaginn þar sem við vorum ekki að keppa fyrr en á Sunnudaginn. Prófið var vel uppsett af Halldóri og prófstjórum sem vorur Þorsteinn Birgisson á laugardeginum og Albert Steingrímsson á sunnudeginum. Við Atlas tókum enn eina 3. einkunina sem er ekki það sem við stefndum að, engu að síður staðreynd og við verðum bara að byggja á þesstu og reyna áfram. setti inn nokkrar myndir hér 05.06.2011 10:25HvannadalshnjúkurFór á Hvannadalshnjúk í gær og verð að monnta mig hér eins og á facebook. Fékk ágætt veður, kalt og hvasst af vestri sem stundum kallaði á skafrenning. Hins vegar frábært útsýni og frábæra ferð. setti inn nokkrar myndir hér 27.05.2011 15:25Hólabergs hvolparSæl verið þið, 22.05.2011 23:11Meira um hvolpaSkruppum að sjá hvolpana undan Atlasi og Öllu. Tveir rakkar Bassi sem er ljós og Tenór sá svarti. Rólegir og yfirvegaðir að sjá. Þeir eru 5 vikna núna verða tilbúnir til afhendingar um miðjan júní. Ath. enn eru 2 lausir hjá Hólabergsræktun tilbúnir til afgreiðslu. hér er mynd af Birnu með þá.
Flettingar í dag: 30 Gestir í dag: 13 Flettingar í gær: 39 Gestir í gær: 16 Samtals flettingar: 67215 Samtals gestir: 18909 Tölur uppfærðar: 28.1.2012 16:56:31 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Suðurhjara AtlasAfmælisdagur: 26 desember 2006Faðir: Volcano´s Royal Affaire Extraordinaire (Lubbi)Móðir: Suðurhjara HrafntinnaTenglar
|